Smávinningur varð að þeim stóra

Annar miðinn var keyptur í Snælandi í Núpalind, en hinn …
Annar miðinn var keyptur í Snælandi í Núpalind, en hinn var keyptur í Lottó-appinu og færðu þeir eigendum sínum rúmlega 10,8 milljónir króna á mann.

Báðir vinningshafarnir sem skiptu með sér tvöfalda Lottópottinum um síðustu helgi hafa gefið sig fram við Íslenska getspá. Annar miðinn var keyptur í Snælandi í Núpalind en hinn var keyptur í Lottó-appinu og færðu þeir eigendum sínum rúmlega 10,8 milljónir króna á mann.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Vinningshafinn sem keypti miðann sinn í Lottó-appinu sagðist hafa haft það sterkt á tilfinningunni upp á síðkastið að nú væri hans tími að koma til að vinna þann stóra, sem varð raunin um liðna helgi. 

Hinn vinningsmiðann á fjölskyldukona á höfuðborgarsvæðinu en hún átti leið í Snæland í Núpalind. Meðferðis var eldri lottómiði sem enn átti eftir að yfirfara, á miðanum reyndist lítill vinningur sem hún lét ganga upp í kaup á nýjum miða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert