Næmið alfarið við Fagradalsfjall og umhverfi

Kort/Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands

Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands segir að eldsuppkomunæmi hafi verið endurmetið í morgun og komi það fram á meðfylgjandi mynd. Nú er næmið alfarið við Fagradalsfjall og umhverfi.

„Aðeins farið að færa sig norður á bóginn. Punktur miðja vegu til Keilis. Við munum birta útreikninga á helstu leiðum hrauna út frá þessari greiningu um leið og þeir eru tilbúnir. Svæðin við Eldvörp, Sýlingafell og Móhálsadal eru dottin út,“ segir í færslu sem hópurinn birti á Facebook. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert