Enn ekki allir komnir fram

Björgunarsveitir hafa verið að störfum í alla nótt og eru …
Björgunarsveitir hafa verið að störfum í alla nótt og eru enn að við gosstöðvarnar. Ljósmynd Slysavarnafélagið Landsbjörg

Enn eru ekki allir komnir fram sem leitað var að í nótt og snemma í morgun á leiðinni að eldgosinu í Geldingadal. Almannavarnir hafa lokað svæðinu við gosstöðvarnar enda gasmagnið lífshættulegt.

Uppfært klukkan 9:05 Þyrla Landhelgisgæslunnar er á flugi yfir gossvæðið til að grennslast fyrir um fólk sem hefur ekki skilað sér í bílinn. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að beiðnin hafi komið frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum og þyrlan hafi farið í loftið klukkan 8:25. Hún er á sveimi yfir gossvæðið, frá Svartsengi að Geldingadal. 

Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir að enn séu einhverjir bílar á svæðinu en upp úr sex í morgun var mesti kúfurinn af fólki farinn af svæðinu. Björgunarsveitir og lögregla eru enn að leita af sér allan grun en enn stendur einn bíll út af og reynt að hafa upp á eiganda hans segir Davíð í samtali við mbl.is.

Aðgerðir eru enn í gangi og var tekin sú ákvörðun snemma í morgun að loka svæðinu af vegna hárra gilda sem mældust við gasmælingar í nótt. „Við mæl­ing­ar í morg­un kom í ljós að gasmeng­un er á svæðinu og er mæl­ing­in kom­in upp fyr­ir hættu­mörk. Svæðið við gosstaðinn er því lokað og er fólk beðið um að virða þá lok­un. Mjög hættu­legt er að nálg­ast gosið eins og er,“ seg­ir í viðvör­un frá al­manna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra.

Afar slæmt veður er á þessum slóðum og gul viðvörun í gildi

Þrátt fyrir það er enn verið að stöðva fólk sem ætlar sér að skoða eldgosið þrátt fyrir viðvarnir almannavarna. Gul­ar veðurviðvar­an­ir eru í gildi á Suður­landi og við Faxa­flóa og gilda þær til klukk­an 2 aðfaranótt þriðju­dags. Suðvest­an­hvassviðri eða -storm­ur, 15-23 m/​s, hvass­ast á Reykja­nesi síðdeg­is. Dimm og byljótt slyddu- eða snjóél og slæmt skyggni, hviður um 30 m/​s. Ekk­ert úti­vist­ar­veður.

Björg­un­ar­sveita­fólk hef­ur vaktað gosstöðvarn­ar og göngu­leiðirn­ar að þeim frá því snemma í gær og komið fólki til aðstoðar. Í gær­kvöldi fjölgaði verk­efn­um björg­un­ar­sveit­ar­manna tölu­vert og hef­ur tug­um ein­stak­linga verið komið til aðstoðar frá því síðdeg­is í gær. Meiri­hluti þeirra sem þurfa aðstoð eru ör­magna eft­ir langa göngu, eitt­hvað hef­ur verið um smá­vægi­leg slys og nokkr­ir hafa villst af leið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert