Tveir leystir úr gæsluvarðhaldi

Tveir menn eru nú lausir úr gæsluvarðhaldi, en hafa verið …
Tveir menn eru nú lausir úr gæsluvarðhaldi, en hafa verið úrskurðaðir í farbann. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag tvo menn í tíu vikna farbann, eða til miðvikudagsins 2. júní.

Var það gert að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en mennirnir eru til rannsóknar vegna manndrápsins í Rauðagerði sem framið var í síðasta mánuði.

Báðir mennirnir verða því nú lausir úr gæsluvarðhaldi, en lögregla lagði ekki fram kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir þeim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert