Fjórir sótt um stöðu umboðsmanns Alþingis

Fjögur gáfu kost á sér í embætti umboðsmanns Alþingis. Skúli …
Fjögur gáfu kost á sér í embætti umboðsmanns Alþingis. Skúli Magnússon, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, Áslaug Björgvinsdóttir lögmaður, Kjartan Bjarni Björgvinsson, dómari við héraðsdóm Reykjavíkur og settur umboðsmaður og Ástráður Haraldsson, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, Samsett mynd

Fjórir hafa sótt um starf umboðsmanns Alþingis en Tryggvi Guðmundsson lætur af störfum þann 1. maí næstkomandi eftir 22 ár í starfi.

Umsækjendurnir eru; Áslaug Björgvinsdóttir lögmaður, Ástráður Haraldsson, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, Kjartan Bjarni Björgvinsson, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur og settur umboðsmaður, og Skúli Magnússon, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur.

Undirnefnd forsætisnefndar, sem skipuð er Steingrími J. Sigfússyni, forseta Alþingis, Guðjóni S. Brjánssyni, fyrsta varaforseta, og Bryndísi Haraldsdóttur, sjötta varaforseta, hefur gengið frá skipan ráðgjafarnefndar, sem verður undirnefndinni innan handar við að gera tillögur til forsætisnefndar um hver skuli valinn. Forsætisnefnd ber síðan tillöguna undir þingið sem greiðir atkvæði um hana.

Eftirtaldir sérfræðingar skipa ráðgjafarnefndina: Helgi I. Jónsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, sem er jafnframt formaður nefndarinnar, Herdís Pála Pálsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs og mannauðsstjóri Deloitte, og Kristín Benediktsdóttir, dósent við lagadeild Háskóla Íslands. Starfsmaður nefndarinnar er Heiðrún Pálsdóttir, ritari forseta Alþingis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert