Átta berjast um fimm efstu sætin

Samsett mynd af frambjóðendunum.
Samsett mynd af frambjóðendunum. Ljósmynd/Aðsend

Framboðsfrestur Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi er runninn út. Átta gefa kost á sér í fimm efstu sætin í kjördæminu í rafrænu forvali sem verður haldið dagana 23. til 25. apríl.

Frambjóðendurnir eru eftirtaldir:

Bjarni Jónsson, fiskifræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi, 1. sæti

Lárus Ástmar Hannesson, grunnskólakennari og bæjarfulltrúi, 3.-5. sæti

Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður, 1. sæti

María Hildur Maack umhverfisstjóri, 3.-5. sæti

Nanný Arna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi, 3.-5. sæti

Sigríður Gísladóttir, dýralæknir, 2.-4. sæti

Þóra Magnea Magnúsdóttir kennari, 2.-3. sæti

Þóra Margrét Lúthersdóttir, sauðfjár- og skógarbóndi, 2.-3. sæti

Bindandi í efstu þrjú 

Kosning hefst á miðnætti 23. apríl og stendur til kl. 17.00 þann 25. apríl. Kosið verður um fimm efstu sæti á listanum, þar af bindandi í efstu þrjú en í samræmi við forvalsreglur VG. Atkvæðisbær í forvalinu eru öll þau sem skráð eru í hreyfinguna í kjördæminu 10 dögum fyrir kjörfund, að því er segir í tilkynningu.

Tveir rafrænir framboðsfundir verða haldnir og opnir öllum:

10. apríl kl. 12.00

19. apríl kl. 20.00.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, stýrir fundunum. Hlekk á fundina verður hægt að nálgast á vg.is og á samfélagsmiðlum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert