Sjávarmálið sett upp á Eiðsgranda

Verkið Sjávarmál verður sett upp við Eiðsgranda.
Verkið Sjávarmál verður sett upp við Eiðsgranda. Ljósmynd/Listasafn Reykjavíkur

Á síðasta fundi skipulagsfulltrúa Reykjavíkur var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds um framkvæmdaleyfi vegna uppsetninga á listaverkinu Sjávarnál.

Það verður staðsett á Eiðsgranda til móts við Keilugranda, vestan megin við dælustöðina.

Höfundar listaverksins, sem valið var úr 70 innsendum tillögum um nýtt útilistaverk í Vesturbæ Reykjavíkur, eru arkitektarnir Baldur Helgi Snorrason og David Hugo Cabo í samstarfi við Andra Snæ Magnason rithöfund. Úrslit í samkeppninni voru tilkynnt í ágúst 2020. Niðurstaða dómnefndar var sú að verkið Sjávarmál sé einstakt verk sem skapi spennandi umhverfi og fjalli um aðkallandi viðfangsefni um leið og það uppfylli öll skilyrði samkeppninnar um að auðga mannlíf í Vesturbænum.

Verkinu er ætlaður staður á sjávarkambinum við Eiðsgranda og blasir við hafi. Ekkert útilistaverk er staðsett á þessu svæði og það muni auka notagildi og aðdráttarafl svæðisins fyrir íbúa og þá sem þar eiga leið um, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert