:) sigraði í forritunarkeppni framhaldsskólanna

Liðið :), skipað þeim Elvari Árna Bjarnasyni, Samúel Arnari Hafsteinssyni …
Liðið :), skipað þeim Elvari Árna Bjarnasyni, Samúel Arnari Hafsteinssyni og Benedikt Vilja Magnússyni. Ljósmynd/Aðsend

Liðið :), skipað nemendum úr Menntaskólanum í Reykjavík og Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, sigraði í forritunarkeppni framhaldsskólanna sem fram fór um liðna helgi. Í ár tóku þátt 58 lið skipuð 135 keppendum úr þrettán framhaldsskólum. Vegna kórónuveirunnar fór keppnin alfarið fram á netinu, sem kom ekki að sök eins og liggur í hlutarins eðli.

:) skipa þeir Elvar Árni Bjarnason, Samúel Arnar Hafsteinsson og Benedikt Vilji Magnússon og fá þeir meðal annars í verðlaun að skólagjöld þeirra verða niðurfelld, kjósi þeir að stunda háskólanám við Háskólann í Reykjavík að framhaldsskóla loknum.

Keppendur sóttu sérmerkta boli og snarl í HR, til að gæða sér á meðan á keppninni stóð, en starfsmenn afhentu varninginn beint í bíla keppenda fyrir utan skólabygginguna, allt í nafni ábyrgra sóttvarna.

Úrslit keppninnar voru eftirfarandi:

Alpha-deild

1. sæti

:) - Menntaskólinn í Reykjavík og Fjölbrautaskólinn í Breiðholti

Elvar Árni Bjarnason, Samúel Arnar Hafsteinsson, Benedikt Vilji Magnússon

2.sæti

The good, the bad and the lucky – Tækniskólinn

Arnór Friðriksson, Tristan Pétur Andersen Njálsson og Kristinn Vikar Jónsson

3.sæti

Pizza Time – Tækniskólinn

Tómas Orri Arnarsson, Jón Bjarki Gíslason, Serik Ólafur Ásgeirsson

Beta-deild

1. sæti

MMM – Verzlunarskóli Íslands

Gunnlaugur Eiður Björgvinsson, Róbert Híram Ágústsson

2. sæti

E­­­³ – Tækniskólinn

Einar Darri, Egill Ari, Elías Hrafn

3. sæti

„Æi, getur þú valið nafnið“ – Fjölbrautaskólinn í Breiðholti

Ingvar Óli Ögmundsson, Brynjar Haraldsson

Delta-deild

1. sæti

DAD – Fjölbrautaskólinn í Breiðholti

Axel Snær Ammendrup Atlason, Daníel Snær Halldórsson, Daníel George Þórarinsson

2.sæti

Netþjónarnir – Tækniskólinn

Bjartur Sigurjónsson, Daníel Stefán T. Valdimarsson

3. sæti

Annað sæti – Tækniskólinn

Sigþór Atli Sverrisson, Bjarni Hrafnkelsson, Birgir Bragi Gunnþórsson

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert