Alls eru 130 í einangrun vegna Covid og hefur þeim fækkað um 9 á milli daga. Fimm greindust með Covid-19 innanlands í gær og var einn þeirra utan sóttkvíar.
Eitt virkt smit greindist við fyrri skimun á landamærunum en auk þess bíða tveir eftir niðurstöðu mótefnamælingar.
Alls voru 1.043 skimaðir innanlands í gær og 908 á landamærunum.
Tvö börn á fyrsta ári eru með smit, 18 smit eru meðal barna á aldrinum 1-5 ára, 8 smit eru á meðal barna á aldrinum 6-12 ára og fjögur í aldurshópnum 13-17 ára.
Í aldurshópnum 18-29 ára eru 16 smit, 28 smit eru í aldurshópnum 30-39 ára, 31 smit eru í aldurshópnum 40-49 ára, 15 smit eru í aldurshópnum 50-59 ára, 7 meðal fólks á sjötugsaldri og einn á áttræðisaldri er með Covid-19.