Hættu við að grilla sykurpúða

Slökkviliðsmenn að störfum í gær vegna gróðurelda.
Slökkviliðsmenn að störfum í gær vegna gróðurelda. mbl/Sigurður Unnar

Ungt fólk sem ætlaði að grilla sykurpúða í Guðmundarlundi í Kópavogi um tíuleytið í gærkvöldi hætti við eftir að slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af því.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu áttaði fólkið sig ekki á hættunni á gróðureldum á svæðinu en eftir samtal við slökkviliðið ákváðu þau hætta við að grilla.  

Í facebook-færslu slökkviliðsins kemur fram að sex útköll hafi verið á dælubíla síðasta sólarhringinn og fimm af þeim vegna sinubruna eða hættu á sinu vegna óvarkárni eins og opnum eldstæðum eða grillum á viðkvæmum svæðum.

Útköll sjúkrabíla voru 94 síðasta sólahring og sex vegna Covid-19. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka