Gras, fíflar og lúpína skotið upp kollinum

Frá Heiðmörk þar sem miklir eldar loguðu.
Frá Heiðmörk þar sem miklir eldar loguðu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Gróður er að koma upp víðast hvar á svæðinu sem gróðureldurinn fór yfir við Hnífhól í Heiðmörk 4. maí. Gras, fíflar og lúpína eru þar byrjuð að skjóta upp kollinum.

Sérfræðingar frá Skógræktinni mátu ástandið á svæðinu dögunum, þeirra á meðal þrír sérfræðingar í rannsóknarstarfi við rannsóknarsviði Skógræktarinnar á Mógilsá, að því er segir á vef Skógræktarfélags Reykjavíkur.

Slökkviliðsmenn að störfum í Heiðmörk í byrjun mánaðarins.
Slökkviliðsmenn að störfum í Heiðmörk í byrjun mánaðarins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Til stendur að leggja út mælifleti til að meta áhrif brunans og fylgjast svo með framvindunni. Fylgst verður með trjágróðri, almennu gróðurfari og skordýralífi. Þá eru uppi hugmyndir um að meta hugsanlegar breytingar á jarðvegsöndun, hvort gróðureldurinn hafi drepið örverur í jarðveginum og þannig haft áhrif á rotnun.

Hér sést hversu umfangsmikil eyðing var af völdum gróðureldsins í …
Hér sést hversu umfangsmikil eyðing var af völdum gróðureldsins í Heiðmörk. mbl.is/Kristinn Magnússon

Rannsóknarverkefni hugsanlega unnið

Þá kemur til greina að BS-nemendur í skógfræði við Landbúnaðarháskólann vinni rannsóknarverkefni um gróðureldinn.

Eldurinn fór yfir um 61 hektara lands. Þar af var ræktaður skógur á 46 hekturum og náttúrulegt birki á 5,5 hekturum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert