Meðalhraunrennslið minnkað lítillega

Hraunið heldur áfram að renna í Geldingadölum.
Hraunið heldur áfram að renna í Geldingadölum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Meðalhraunrennslið vegna eldgossins í Geldingadölum yfir tímabilið 11. til 18. maí hefur minnkað lítillega frá vikunni á undan og er nú 11 rúmmetrar á sekúndu.

Að teknu tilliti til óvissu í mælingunum er munurinn ekki marktækur, að því er segir á vefsíðu Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands.

Síðustu tvær vikur hefur gosið því verið tvöfalt öflugra en það var að meðaltali fyrstu sex vikurnar.

Hraunið mælist nú 38,3 milljónir rúmmetra og flatarmálið er 2,06 ferkílómetrar.

Gosinu skipt í þrjá hluta 

Gróflega má skipta gosinu í þrennt, að því er segir á vefsíðunni.

Fyrsta tímabilið stóð í um tvær vikur og einkenndist af fremur stöðugu en þó örlítið minnkandi hraunrennsli. Rennslið minnkaði úr 7-8 rúmmetrum á sekúndu í 4-5 m3/s á tveimur vikum.  

Annað tímabilið, sem einnig stóð í tvær vikur, einkenndist af opnun nýrra gosopa norðan við upphaflegu gígana. Hraunrennsli var nokkuð breytilegt, á bilinu 5-8 m3/s.

Þriðja tímabilið, síðustu fimm vikur, hefur einn gígur verið ráðandi og kemur allt hraunið úr honum. Hægt er að skipta þessu tímabili í tvo hluta. Fyrstu þrjár vikurnar var rennslið 5-8 m3/s og heldur vaxandi. Síðustu tvær vikur hefur rennslið verið 11-13 m3/s. Þrátt fyrir þessa aukningu er þó hraunrennslið fremur lítið miðað við mörg önnur gos.

Frá gosstöðvunum í Geldingadölum.
Frá gosstöðvunum í Geldingadölum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Rásin fer víkkandi

„Gosið í Fagradalsfjalli er um margt frábrugðið þeim gosum sem við höfum orðið vitni að undanfarna áratugi. Flest gosin hafa átt upptök í kvikuhólfum undir megineldstöðvum þar sem þrýstingur í hólfinu og stærð þess virðist ráða mestu um stærð og lengd goss,“ segir á  síðunni.

„Í Fagradalsfjalli virðist þessu vera nokkuð öðruvísi farið. Þar er svo að sjá að aðstreymisæðin og eiginleikar hennar ráði miklu um kvikuflæðið. Rásin sem opnaðist var tiltölulega þröng og löng (nær niður á ~17 km dýpi) og flutningsgetan takmörkuð. Aukning með tíma bendir til þess að rásin fari víkkandi, sennilega vegna rofs í veggjum hennar. Ekki er að sjá að þrýstingur í upptökum hafi minnkað að ráði og því vex flæðið með tímanum þar sem rásin stækkar. Engin leið er á þessari stundu til að segja til um hve lengi gosið muni vara eða hvort hraunrennslið muni halda áfram að aukast,“ segir þar einnig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert