Beinin eru ekki mannabein

Beinin fundust við Kambana fyrir ofan Hveragerði.
Beinin fundust við Kambana fyrir ofan Hveragerði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Beinin sem fundust við Kambana í gærkvöldi eru ekki mannabein.

Þetta staðfestir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við mbl.

Hann segir óljóst úr hvaða dýri beinin séu en að tæknideild hafi gengið úr skugga um að þau væru ekki mannabein.

Fólk á gangi gekk fram á beinin í hraungjótu ofan við Hveragerði um kvöldmatarleytið í gær. Ásamt beinunum voru þar föt, skór, glerbrot og annað rusl.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert