Fylgismunur eftir aldurshópum

Alþingi að kvöldi til.
Alþingi að kvöldi til. mbl.is/Hari

Í kosningabaráttu reyna velflestir stjórnmálaflokkar í orði kveðnu að höfða til þjóðarinnar allrar, en staðreyndin er sú að allir sækja þeir fylgi í mismiklum mæli til einstakra hópa í samfélaginu. Þá er eitthvað við stefnu þeirra, frambjóðendur eða forystufólk, sem höfðar í meiri mæli til sumra en annarra.

Kúnstin í kosningabaráttu er þá að halda í kjarnafylgið en ganga í augun á næstu hópum, þar sem vaxtar er helst von.

Þetta þekkja menn og um það hefur mátt lesa í fréttaskýringum hér í blaðinu undanfarna daga, þar sem lagt hefur verið út af skoðanakönnun um fylgi stjórnmálaflokka sem MMR gerði í samstarfi við Morgunblaðið og mbl.is.

Ólíkir hagsmunir fólks eftir aldursskeiði

Þar hefur verið dregið fram hvernig stjórnmálaflokkarnir höfða í mismiklum mæli til kynjanna, hvernig sumir flokkar ganga betur í fólk á landsbyggðinni en suðvesturhorninu og þar fram eftir götum.

Meðal þess sem mikið er horft til í þessu samhengi er aldur.

Hagsmunir fólks breytast á lífsleiðinni eftir fjölskylduaðstæðum, tekjum, eignasöfnun og fleiru og það hefur áhrif á kosningahegðun. Hið sama má raunar einnig segja um menntun fólks og tekjur, sem geta haft áhrif á starfsvettvang og aðra hagsmuni.

Svo tala menn stundum um ungu kynslóðina, sem muni landið erfa, sumir telja hugmyndir hennar ferskari og sérstakur veigur í stuðningi ungs fólks, sem hafi á einhvern hátt sérstaka tengingu við framtíðina.

Á móti kemur að yngsta kynslóðin er oft enn að feta sig í lífinu og hefur færri skuldbindingar.

Það kann að vera ástæðan fyrir því að kjörsókn ungs fólks er mun minni en hinna eldri og vanir kosningasmalar leggja því meira upp úr að trygga atkvæði aldurhniginna en ungra, því þessir eldri koma mun frekar á kjörstað.

Úr stöplaritunum að ofan má ýmislegt lesa um hlutfallslegt fylgi flokka í fjórum aldurshópum, en hver er um fjórðungur kjósenda.

Aldur skiptir máli

Þar má t.d. sjá að Píratar eiga langmestu fylgi að fagna hjá ungum, sem e.t.v. er vísbending um hvers vegna þeim vegnar iðulega verr í kosningum en skoðanakönnunum.

Það á við um aldur líkt og búsetu, að þar eru Samfylking og Viðreisn eins konar spegilmynd. Viðreisn er mjög miðaldra, en á lítið hjá ungu fólki og öldnu, en því er þveröfugt farið hjá Samfylkingu. Raunar er það einmitt og aðeins hjá Samfylkingu sem 68 ára og eldri eru stærsti hluti stuðningsmanna, nær tveir af hverjum fimm. Sem kann að vera ástæða þess að svo mikil áhersla var lögð á að koma fulltrúa aldraðra ofarlega á lista flokksins í Reykjavík.

Greina má ákveðnar hneigðir hjá öðrum flokkum en í mun minna mæli. Jafnast er fylgið eftir aldri hjá Flokki fólksins. Þó má sjá að meðal 30-49 ára virðist Sjálfstæðisflokkurinn eiga minna fylgi en vænta mætti af meðalfylgi og hinum hópunum. Er óvarlegt að benda á að hann sæki minna til „hrunkynslóðarinnar“, þeirra sem voru að koma út í lífið um og upp úr bankahruni?

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert