Jón Gnarr, leikari og grínisti, greindist með Covid-19 í gær. Smitið vekur athygli þar sem Jón var ómyrkur í máli þegar hann lýsti smithættu í örtröðinni við komusalinn í Leifsstöð í samtali við mbl.is í síðustu viku, en þá var hann staddur í komusal flugstöðvarinnar.
„The show must go on,“ sagði Jón léttur miðað við aðstæður þegar blaðamaður náði á hann og spurði út í smitið.
Heldurðu að þetta komi frá flugstöðinni?
„Ég var ekki í neinum samskiptum við neinn sem ég á að hafa getað smitast af. Það er ekki hægt að rekja mitt smit til ákveðins einstaklings eða svoleiðis, þannig að ég hef mjög líklega smitast á ferð og flugi. En smitrakningarteymið getur ekki sagt til um hvaðan smitið kemur, þetta er bara einhvern veginn óljóst,“ segir Jón í samtali við mbl.is.
Jón vakti máls á mannþröng í komusal Leifsstöðvar í síðustu viku en örtröð hefur ítrekað myndast þar að undanförnu, m.a. vegna þess hve tímafrek skoðun vottorða er.
„Eins og allir þá hef ég gætt að smitvörnum, kem ekki við handrið, stend helst þrjá metra frá fólki með sprittbrúsa í höndunum, stunda handþvott af miklu kappi. Og ef það er verið að tala um að mannamót séu uppáhaldsstaður fyrir veiruna þá er eina skiptið sem ég hef verið í mannþröng það er þarna í Leifsstöð,“ segir Jón.
Verið er að einfalda gátlista fyrir þá starfsmenn sem sinna skoðun bólusetningarvottorða í Flugstöð Leifs Eiríkssonar til að draga úr þeim löngu biðröðum sem þar hafa myndast að undanförnu. Þá eru starfsmenn flugstöðvarinnar einnig að skoða leiðir til að auka öryggi og bæta flæði í húsinu að sögn Víðis Reynissonar yfirlögregluþjóns.