Gefur björgunarsveitinni Húsafellsbæturnar

Samningar náðust í síðustu viku.
Samningar náðust í síðustu viku. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sæmundur Ásgeirsson hefur ánafnað Björgunarsveitinni Brák í Borgarnesi þá peningaupphæð sem honum var greidd vegna Húsafellsmálsins, alls fimm milljónir króna.

Sæmundur átti í deilum við nágranna sinn, Páll Guðmunds­son, á Húsafelli um legsteinahús Páls. Í síðustu viku var hins vegar undirritaður sáttarsamningur í málinu þar sem kveðið var á um að Borg­ar­byggð greiddi báðum aðilum bæt­ur vegna þess tjóns sem þeir hlutu af mál­inu.

Á Facebook-síðu björgunarsveitarinnar segir að peningarnir verði nýttir í að byggja upp nýja björgunarmiðstöð sem stendur til að verða klár 1. desember.

Björgunarsveitin þakkar Sæmundi innilega fyrir peningagjöfina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka