60 milljónir í mannúðaraðstoð í Afganistan

Utanríkisráðuneytið hefur tilkynnt um að veittar verða 60 milljónir króna …
Utanríkisráðuneytið hefur tilkynnt um að veittar verða 60 milljónir króna í mannúðaraðstoð til Afganistan. mbl.is/Kristinn Magnússon

Utanríkisráðuneytið hefur tilkynnt um 60 milljóna króna framlag til mannúðaraðstoðar í Afganistan, að því er fram kemur í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Þar segir að framlaginu verði skipt jafnt milli Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) og Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC), en báðar stofnanirnar hafa sérstöðu á sínu sviði þjónustu við fólk á átakasvæðum.

„Átök hafa staðið yfir í Afganistan í rúm fjörutíu ár og hefur mannúðarástand lengi verið mjög slæmt. Fyrr á árinu áætluðu Sameinuðu þjóðirnar að um helmingur afgönsku þjóðarinnar, eða um 18,4 milljónir, hafi þurft nauðsynlega á mannúðaraðstoð að halda og að einn af hverjum þremur íbúum hafi búið við hungur. Þá eru hátt í þrjár milljónir manna á flótta innanlands,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að augljóst sé að ástandið fari versnandi eftir valdtöku talibana. „Sameinuðu þjóðirnar hafa ítrekað mikilvægi þess að mannúðaraðgerðir haldi áfram í landinu en skortur á fjármagni til að veita lífsbjargandi aðstoð muni hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir afgönsku þjóðina.“

Bandarískur landgönguliði lyftir ungabarni yfir girðingu á alþjóðaflugvellinum í Kabúl. …
Bandarískur landgönguliði lyftir ungabarni yfir girðingu á alþjóðaflugvellinum í Kabúl. Fjöldi fólks hefur reynt að undanförnu að flýja landið. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert