Lífskjarasamningurinn heldur gildi sínu út samningstímann

Frá kynningu á lífskjarasamningunum árið 2019.
Frá kynningu á lífskjarasamningunum árið 2019. mbl.is/​Hari

Samninganefnd Alþýðusambands Íslands og framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins hittust á fundi í dag um framhald lífskjarasamningsins. Þar kom fram fram vilji af beggja hálfu til þess að samningar standi og halda þeir því gildi sínu þar til þeir renna út 1. nóvember 2022.

Þetta kemur fram í tilkynningu, sem er svohljóðandi:

„Lífskjarasamningur SA og aðildarfélaga ASÍ hvílir á forsendum sem ekki stóðust fullkomlega þar sem stjórnvöld efndu ekki öll fyrirheit í yfirlýsingu sinni dags. 4. apríl 2019.

Samninganefnd Alþýðusambands Íslands og framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins hittust á fundi í dag um framhald Lífskjarasamningsins, en bregðist forsendur getur hvor aðili sagt honum upp fyrir kl. 16. þann 30. september.

Á fundi aðila kom fram vilji af beggja hálfu til þess að samningar standi og halda þeir því gildi sínu þar til þeir renna út þann 1. nóvember 2022.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert