Ótímabært að aflétta rýmingu

Frá Útkinn.
Frá Útkinn. Ljósmynd/Svartaborg

Eftir fund almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og Veðurstofu Íslands er talið ótímabært að aflétta rýmingu á bæjunum fimm sem voru rýmdir í Útkinn í nótt.

Rík­is­lög­reglu­stjóri, í sam­ráði við lög­reglu­stjór­ann á Norður­landi eystra, lýsti yfir hættustigi í Útkinn í nótt vegna úrkomu og skriðuhættu og er það enn í gildi. 

Segir í tilkynningu frá almannavörnum að lélegt skyggni sé á svæðinu en að þyrla Landhelgisgæslunnar muni fljúga yfir svæðið um hádegið auk þess sem sérsveitarmenn ríkislögreglustjóra munu mynda svæðið með flygildi.

Staðan verður endurmetin síðdegis. 

Aðgerðir gengu vel á Ólafsfirði

Óvissustig er enn í gildi á Tröllaskaga en það flæddi inn í fjölmörg hús á Ólafsfirði í nótt. 

Þá segir í tilkynningu að aðgerðir á Ólafsfirði hafi gengið vel og búið sé að ná vel utan um aðstæður á staðnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert