Beint: Dagur verkfræðinnar

Markmiðið með deginum er að kynna störf verkfræðinga og tæknifræðinga.
Markmiðið með deginum er að kynna störf verkfræðinga og tæknifræðinga. Ljósmynd/VFÍ

Dagur verkfræðinnar er haldinn í sjötta sinn á Hilton Reykjavík Nordica í dag. Á þriðja tug fyrirlestra og kynninga eru á dagskrá í þremur opnum sölum. Dagskráin verður frá klukkan 13 til 17.

Markmiðið með deginum er að kynna störf verkfræðinga og tæknifræðinga. Einnig verður í fyrsta sinn afhentur Teningurinn, viðurkenning Verkfræðifélags Íslands fyrir framúrskarandi verkefni eða framkvæmd.

Hér má sjá dagskrána í heild sinni.

 Salur A – Nýir tímar, ný tækni

 Salur B – Verkfræðin og umhverfið

 Salur H-I – Verkfræðin er allsstaðar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert