Lausaganga katta verður bönnuð á Akureyri

Lausaganga katta verður bönnuð 1. janúar 2025.
Lausaganga katta verður bönnuð 1. janúar 2025. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lausaganga katta verður bönnuð á Akureyri frá og með 1. janúar 2025. 

Meirihluti bæjarstjórnar Akureyrar samþykkti tillögu þess efnis í gær. Nokkur ágreiningur hefur verið um málið en enginn meiri- eða minnihluti er starfandi í sveitarfélaginu heldur starfa allir flokkar saman í bæjarstjórn. 

Langar umræður voru um tillöguna á bæjarstjórnarfundi í gær samkvæmt fréttaflutningi Akureyrar.net.

Hildur Jana Gísladóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar, lagði fram svohljóðandi bókun fyrir hönd sína, Sóleyjar Bjarkar Stefánsdóttur og Heimis Haraldssonar: 

  • Við hörmum þá niðurstöðu bæjarstjórnar að banna alfarið frjálsa útivist hjá kisum. Bæjarfélagið hefur lítið sem ekkert gert til að framfylgja þeim samþykktum sem nú þegar eru í gildi né látið á það reyna að breyta samþykktum í þá veru að sem flestir geti vel við unað. Hægt hefði verið að stíga það skref að heimila ekki útivistina að næturlagi og yfir varptíma fugla. Mikilvægara hefði verið að leita lausna en að grípa til banns. Fyrst grípa á hins vegar til banns hefði verið eðlilegra að setja sólarlagsákvæði, þannig að þær kisur sem nú þegar eru útikisur fái að vera það út sinn líftíma.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert