Alls hafa 136.991 fengið örvunarbólusetningu vegna Covid-19 en af þeim hafa 39.206 fengið viðbót eftir bólusetningu með efni Janssen.
Þetta kemur fram á covid.is.
Bólusetningarátak með örvunarskammt af bóluefni gegn Covid-19 hófst í Laugardalshöll 15. nóvember og hafa um tíu þúsund verið boðaðir daglega.
Hingað til hafa um sjö þúsund verið bólusettir á hverjum degi en bólusett er á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum milli klukkan 10 og 15.
Allir 16 ára og eldri geta fengið örvunarskammt þegar um sex mánuðir eru liðnir frá grunnbólusetningu.