Skipar starfshóp til að fjalla um blóðtöku úr hryssum

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. Ljósmynd/Árni Sæberg

Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp til að fjalla um blóðtöku úr fylfullum hryssum til framleiðslu á efninu eCG, frjósemislyfja handa dýrum. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðs Íslands.

Starfshópnum verður falið að skoða starfsemina, regluverkið í kring um hana og eftirlit, auk þess að skoða löggjöf og mögulega framkvæmd slíkrar starfsemi erlendis.

Fulltrúi ráðuneytisins mun leiða vinnuna en ráðherra mun óska eftir tilnefningum í starfshópinn frá Matvælastofnun og frá Siðfræðistofnun Háskóla Íslands. Fundað verður með hagaðilum auk þess sem almenningi mun gefast kostur á að tjá sig um störf og tillögur hópsins á Samráðsgátt stjórnvalda þegar þær liggja fyrir. Starfshópurinn mun hefja störf á næstu dögum.

Verkefni starfshópsins er aðskilið rannsókn Matvælastofnunar, en stofnunin rannsakar nú meint alvarleg brot á velferð blóðtökuhryssna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert