Geta nálgast heildstæðar upplýsingar um stöðuna á fasteignamarkaði

Margrét Hauksdóttir, forstjóri Þjóðskrár.
Margrét Hauksdóttir, forstjóri Þjóðskrár. Ljósmynd/Aðsend

Þjóðskrá hefur hafið birtingu á sjálfvirkum skýrslum úr fasteignaskrá, þjóðskrá og kaupskrá. Fyrstu skýrslurnar eru sniðnar að einstökum sveitarfélögum þar sem gögn úr þessum skrám birtast fyrir valið sveitarfélag. Með þessu geta starfsmenn sveitarfélaga og aðrir áhugasamir nálgast heildstæðar upplýsingar um stöðuna á fasteignamarkaði, fyrstu kaupendur, íbúafjölda og fleira sem birtist þeim sækja skýrslurnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þjóðskrá.

Þar segir einnig, að gögnin í skýrslunum byggi á sjálfvirkum gagnauppfærslum sem séu flestar uppfærðar einu sinni á sólarhring og gefi því raunstöðu yfir skráðan fjölda íbúa, aldursdreifingu þeirra,veltu á fasteignamarkaði, fyrstu kaupendur, kaupverð, þróun fasteignamats o.fl. Fyrir þá sem vilja frekari upplýsingar um einstaka gagnasöfn má skoða það nánar á vef Þjóðskrár skra.is. Gögnin verða svo gerð aðgengileg í vefþjónustum fyrir stórnotendur á fyrri hluta árs 2022, segir ennfremur. 

Nálgast notendur með öðrum hætti en áður

„Við höfum verið að að endurskoða og sjálfvirknivæða útgáfu á talnaefnið á skra.is að undanförnu og þetta er einn liður í þeirri vinnu. Þarna er sjálfvirknivæðing á undirliggjandi vinnslum og svo erum við að nálgast notendur gagnanna með öðrum hætti en áður sem vonandi einfaldar þeim sína vinnu sem vilja nálgast gögn út frá einstaka sveitarfélögum. Í framtíðinni býður þetta upp á marga möguleika eins og sjálfvirkar skýrslur fyrir leigu- og kaupmarkað fasteigna sem byggir á upplýsingum í gagnasafni Þjóðskrár, “ segir Margrét Hauksdóttir, forstjóri Þjóðskrár, í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert