Í haldi eftir skotárás í Grafarholti

Karlmaður á þrítugsaldri er í haldi lögreglu eftir að tilkynnt var um skotárás í Grafarholti á fjórða tímanum í nótt. Skotið var á karl og konu sem voru stödd utandyra í hverfinu. Þau voru flutt á slysadeild þar sem gert var að sárum þeirra, en eru ekki í lífshættu. Greint er frá þessu í tilkynningu frá lögreglu.

Lögreglan var með mikinn viðbúnað vegna málsins og var sérsveit ríkislögreglustjóra kölluð til, en hún handtók fyrrnefndan karlmann miðsvæðis í borginni fyrr í morgun. Rannsókn málsins er á frumstigi.

Fram kemur í tilkynningunni að viðbúið sé að mál sem þetta valdi óhug hjá fólki, en lögreglan vill taka fram að hún telur engu að síður að almenningi sé ekki hætta búin vegna þessa. Heldur að hér sé um að ræða einstakt mál.

Lögreglan segist jafnframt ekki ætla að gefa frekari upplýsingar að svo stöddu, en búast megi við fréttatilkynningu síðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert