Páll Magnússon með nýja Dagmálaþætti á mbl.is

Páll Magnússon mun fara yfir pólitíkina vikulega í Dagmálum.
Páll Magnússon mun fara yfir pólitíkina vikulega í Dagmálum. Ljósmynd/mbl.is

„Ég mun fjalla um það sem er efst á baugi á hverjum tíma. Þættirnir verða ákveðin vikuuppgjör á pólitíkinni,“ segir Páll Magnússon um nýja vikulega Dagmálaþætti hans sem verða sýndir alla laugardaga á mbl.is.

Hver þáttur verður um klukkutíma langur og verður sá fyrsti sýndur 19. mars.

Ætlar að standa við loforðið

Páll er spenntur að byrja og segist hafa lofað sjálfum sér þegar hann hætti í stjórnmálum í fyrra að taka einungis að sér verkefni sem honum fyndust skemmtileg.

„Ég hlakka til að byrja á þessu og er viss um að þetta geti verið áhugavert og skemmtilegt. Ég er að reyna að standa við það sem ég lofaði sjálfum mér þegar ég hætti í pólitík – að gera bara það sem mér finnst skemmtilegt.“

Þá telur Páll að reynsla hans úr bæði fjölmiðlum og stjórnmálum muni nýtast honum vel á skjánum.

„Að baki býr auðvitað 40 ára reynsla í fjölmiðlum og svo hef ég horft á þetta bæði utan frá og innan frá þar sem ég var alþingismaður í fimm ár. Þessi reynsla skapar góðan grunn til að gera þetta vel.“

Dagmál er hnitmiðaður frétta- og dægurmálaþáttur Morgunblaðsins sem er opinn áskrifendum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert