20 milljóna vinningur gekk ekki út

Lottó.
Lottó.

Fyrsti vinningur í Lottó gekk ekki út þegar dregið var út í kvöld. Fyrsti vinningur var tæplega 21 milljón króna. 

Fjórir miðahafar fengu annan vinning og fær hver þeirra 123.900 krónur í sinn hlut. Miðarnir voru ýmist seldir á lotto.is, í Lottó-appinu eða voru í áskrift. 

Enginn var með allar fimm jókertölur kvöldsins réttar í réttri röð. Fjórir voru með fjórar tölur réttar í réttri röð og fær hver þeirra hundrað þúsund krónur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert