Niðurstöður eru komnar úr kosningu til kirkjuþings fyrir árin 2022-2026, en kosningunni lauk á hádegi í dag.
Þingið er æðsta ákvörðunarvald í málefnum Þjóðkirkjunnar, og er það skipað 12 vígðum einstaklingum og 17 leikmönnum, ásamt sama fjölda varamanna.
Lista yfir aðalmenn og varamenn á kirkjuþingi 2022-2026 má sjá á vef Þjóðkirkjunnar.