Hiti gæti farið í 15 stig

Hiti gæti farið í fimmtán stig í dag.
Hiti gæti farið í fimmtán stig í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Í dag kemur úrkomubakki inná austanvert landið og færist svo til norðurs og vesturs. Samt sem áður snertir hann Suðurland og sunnanverðan Faxaflóa lítið sem ekkert, en á móti má búast við skúrum á víð og dreif, einkum síðdegis og í kvöld. Samfara úrkomunni verður hitinn á bilinu 5 til 10 stig en gæti farið í 15 stig annars.“

Þetta segir í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands í morgun. 

Þar segir einnig að á morgun og föstudag verði áframhaldandi fremur mild austlæg átt. „Væta af og til um landið sunnanvert en lengst af þurrt fyrir nyrðra. Einna mest verður úrkoman á Suðausturlandi og sunnanverðum Austfjörðum. Enda er það frekar regla en undantekning að úrkomusamast verður áveðurs.“

Veðurhorfur á landinu næstu daga: 

Á fimmtudag:
Norðaustan og austan 5-13 m/s. Rigning suðaustanlands, súld austast og allvíða skúrir suðvestantil seinnipartinn. Annars úrkomulítið. Hiti 7 til 15 stig, en svalara á Vestfjörðum og á Ströndum.

Á föstudag:
Austlæg átt, 3-8 m/s, en norðaustan 5-10 á Vestfjörðum. Rigning með köflum sunnantil, en annars stöku skúrir, einkum síðdegis. Hiti 5 til 14 stig, svalast á Vestfjörðum.

Á laugardag:
Norðankaldi og víða dálítil væta, en þurrt að mestu sunnan- og vestanlands. Hlýtt á sunnanverðu landinu, en fremur svalt fyrir norðan.

Á sunnudag:
Norðlæg átt og dálitlar skúrir norðaustantil og svalt í veðri, en annars yfirleitt bjartviðri og milt að deginum.

Á mánudag og þriðjudag:
Útlit fyrir suðvestlæga átt með dálítilli vætu sunnan- og vestanlands og hlýnandi veður.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert