Þrír handteknir í tengslum við stunguárásina

Atvikið átti sér stað í miðbænum í nótt.
Atvikið átti sér stað í miðbænum í nótt. mbl.is/Ari

Þrír hafa verið handteknir í tengslum við stunguárás sem varð í miðbænum í nótt. Þetta staðfestir varðstjóri lögreglu í samtali við mbl.is. 

Ágreiningur kom upp áður en einstaklingur var stunginn í bakið en málið er nú til rannsóknar hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Búið er að ræða við alla aðila málsins.

Lögreglan hafði ekki upplýsingar um líðan árásarþola en í dagbók lögreglu í morgun var greint frá því að hann hafi verið með meðvitund er hann var fluttur á slysadeild. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert