Dregið jafnt og þétt úr krafti gossins síðustu tíu daga

Páll tekur fram að gosið í Meradölum sé aðeins hluti …
Páll tekur fram að gosið í Meradölum sé aðeins hluti af langri atburðarás. mbl.is/Kristinn Magnússon

Dregið hefur jafnt og þétt úr krafti eldgossins í Meradölum síðustu tíu daga. Þetta segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur.

Ekki sé hægt að spá til um það hversu mikið eða lítið krafturinn muni aukast á næstunni. 

„Krafturinn getur þess vegna aukist aftur, en staðreyndin er sú að það hefur minnkað jafnt og þétt síðustu tíu daga,“ segir Páll.

„Gosóróinn fylgir nokkuð vel ákafanum í gosinu. Besta leiðin til að fylgjast með kraftinum nákvæmlega er því að fylgjast með gosóróanum á skjálftamælanetinu,“ bætir Páll við en gosórói er stöðugur titringur í jörðinni sem stafar af gosinu.

Gosið í Meradölum aðeins hluti af langri atburðarás

Páll tekur fram að gosið í Meradölum sé aðeins hluti af langri atburðarás.

„Við erum að ganga inn í gostímabil þar sem miklu meira er undir en þetta gos núna.“

Spurður hvort mikil hætta stafi af gasinu á gosstöðvunum bendir Páll á að gasspá sé gefin út á hverjum degi og að fólk sem leggi leið sína þangað eigi að geta passað sig.

„Aðalatriðið er að vera vindmegin við gosstöðina og vera ekki í gosmekkinum. Hann er óhollur en til allrar lukku er gosið fremur máttlaust, þannig að það er nú ekkert voðalega mikið gas sem kemur, en auðvitað er ekki gott að lenda í mekkinum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert