Skerpt á eftirliti með skólalóðum í Árborg

Við Austurveg sem er aðalgatan á Selfossi.
Við Austurveg sem er aðalgatan á Selfossi. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Þorsteinn Hjartarson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs hjá sveitarfélaginu Árborg, segir að skerpt verði á öllum verkferlum  innan skóla vegna þeirra sprengna sem hafi fundist í vikunni. Þar að auki verði skerpt á eftirliti við skólalóðir á morgnana.

Lögreglan á Suðurlandi greindi frá því á Facebook-síðu sinni fyrr í vikunni að tilkynningar hefðu borist embættisinu vegna sprengjugerðar. Þá þurftu nemendur að halda sig inni hluta fimmtudags vegna sprengju á gatnamótum Engjateigs og Tryggvagötu.

Skólalóðir kembdar í upphafi hvers dags

Skólastjórnendur funduðu í gær með fulltrúum sveitarfélagsins og ræddu næstu skref og viðbrögð vegna þessa máls sem skók bæinn í liðinni viku.

Að sögn Þorsteins verða skólalóðir í sveitarfélaginu teknar út á hverjum morgni áður en skólahald hefst og gengið úr skugga um að enga torkennilega hluti sé þar að finna. Þá verður sérstaklega mikið eftirlit í komandi viku.

„Það verður farið út á morgnana og gengið hringinn í kringum skólana og lóðin skönnuð ásamt næsta nágrenni. Það er verklag sem við ætlum að skerpa á,“ segir Þorsteinn í samtali við mbl.is og tekur fram að almennt séu skólalóðir skoðaðar fyrir upphaf hvers dags.

Sprengju-viðbragðsáætlun ekki í kortunum

Þótt síðastliðinn vika hafi verið sérlega annasöm hvað varðar sprengjur segir Þorsteinn það engin nýlunda að óvæntir hlutir finnist eða gerist á skólalóðum. Hann segir því ekki endilega standa til að gera sérstaka viðbragðsáætlun vegna sprengjugerðar:

„Þetta er svo sem ekki alveg nýtt í skólum að svona gerist. Við erum með áætlanir en við ætlum núna að skerpa á þessu. Ekki síst í ljósi þessarar reynslu,“ segir Þorsteinn. 

Þorsteinn Kjartansson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs hjá Árborg.
Þorsteinn Kjartansson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs hjá Árborg. mbl.is/Hólmfríður María
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert