Skora á stjórnvöld að hindra hækkun fasteignagjalds

Fasteignamat ársins 2023 er 19,9% hærra en ársins 2022.
Fasteignamat ársins 2023 er 19,9% hærra en ársins 2022. mbl.is/Sigurður Bogi

Húseigendafélagið, Landssamband eldri borgara og Félag atvinnurekenda skora á ríki og sveitarfélög að grípa til aðgerða til að hindra að gífurlegar verðhækkanir á fasteignamarkaði leiði til mikilla hækkana fasteignagjalda á eignir fólks og fyrirtækja.

„Til skemmri tíma þurfa sveitarstjórnir, sem vinna nú að gerð fjárhagsáætlana fyrir næsta ár, að lækka álagningarprósentu fasteignaskatta og -gjalda til að sporna gegn sjálfvirkum hækkunum álagna.

Til lengri tíma þurfa ríki og sveitarfélög að ná saman um leiðir til að breyta óskiljanlegu og ósanngjörnu kerfi þar sem skattlagning fólks og fyrirtækja eltir sveiflur í eignaverði,“ segir í tilkynningu.

Aðgerðaleysi leiði til hækkunar

Þá er bent á að fasteignamat ársins 2023 sé 19,9% hærra en ársins 2022 og að án aðgerða af hálfu sveitarfélaganna muni sú hækkun leiða til samsvarandi hækkunar fasteignaskatta og -gjalda.

„Hækkun fasteignaskatta og -gjalda bætir enn í verðbólguna. Húsaleiga jafnt atvinnu- sem íbúðarhúsnæðis hækkar og fyrirtæki neyðast til að hækka verð. Sveitarfélögin geta ekki hlaupist undan sinni ábyrgð á því verkefni að ná tökum á verðbólgunni.“

Kemur fram að álagðir fasteignaskattar sveitarfélaganna hafi hækkað um 50,2% á hvern íbúa á árunum 2015-2021 og að á sama tíma hafi verið rúmlega tvöföld hækkun neysluverðsvísitölu, sem nam 24%. Álögur hafi þannig hækkað langt umfram eðlileg viðmið undanfarin ár.

Útreikningurinn ógagnsær

Þá segir að útreikningur fasteignamats sé ógegnsær og að fasteignamatið sé aðallega gjaldstofn fyrir ýmsar opinberar álögur.

„Auðvelt væri að nota annan gjaldstofn, til dæmis brunabótamat, fermetrafjölda eða aðra viðmiðun sem fylgir ekki sveiflum í fasteignaverði og dregur þannig á eftir sér sjálfvirka röð hækkana.“

„Húseigendafélagið, Landssamband eldri borgara og Félag atvinnurekenda skora á Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra og Sigurð Inga Jóhannsson ráðherra sveitarstjórnarmála að beita sér fyrir viðræðum við sveitarfélögin og hagsmunaaðila um að breyta lögum um fasteignamat og tekjustofna sveitarfélaga og koma á gegnsærra og sanngjarnara kerfi,“ segir að lokum í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert