Ekki með heimildir fyrir eftirliti

Jón Gunnarsson að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun.
Jón Gunnarsson að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir að lögreglan á Íslandi hafi rekið sig á að geta ekki haft eftirlit með einstaklingum sem lögregluyfirvöld erlendis hafi hvatt til að fylgst verði með.

Jón sagði við RÚV í gær að frumvarp um afbrotavarnir eða forvirkar rannsóknarheimildir væri tilbúið í dómsmálaráðuneytinu.

„Við erum að glíma hér við mjög vaxandi ógn í skipulagðri glæpastarfsemi óháð þessari uppákomu núna,“ sagði Jón í samtali við mbl.is að loknum ríkisstjórnarfundi.

„Það er hægt að rekja einhver dæmi um það að okkur hafi borist upplýsingar um einstaklinga sem eru undir eftirliti í lögregluembættum í nágrannalöndum okkar og á Norðurlöndum og við höfum fengið hvatningu til að fylgjast með og veita til baka upplýsingar, og við erum hreinlega ekki með heimildir til að gera það,“ bætti hann við. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert