Milestone-málinu vísað frá Hæstarétti

Endurupptökumáli Karls Wernerssonar og endurskoðendanna Sigurþórs Charles Guðmundssonar og Margrétar …
Endurupptökumáli Karls Wernerssonar og endurskoðendanna Sigurþórs Charles Guðmundssonar og Margrétar Guðjónsdóttur var vísað frá Hæstarétti í dag að kröfu þeirra og ákæruvaldsins. mbl.is/Jim Smart

Hæstiréttur dæmdi í dag að enduruppteknu Milestone-máli, er lýtur að þætti Karls Emils Wernerssonar, eins fyrrverandi aðaleigenda fjárfestingafélagsins Milestone, og endurskoðendanna Sigurþórs Charles Guðmundssonar og Margrétar Guðjónsdóttur, skyldi vísað frá Hæstarétti.

Stendur þar með sýknudómur fjölskipaðs Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í desember 2014 sem Hæstiréttur sneri við í apríl 2016. Hlaut Karl þar þriggja og hálfs árs fangelsi en Sigurþór og Margrét níu mánaða skilorðsdóma.

Brot gegn mannréttindasáttmála Evrópu

Byggja endurupptökumálin á því að íslenska ríkið viðurkenndi að hafa brotið ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu á þremur framangreindu og gekk til sátta við þau í framhaldinu. Þannig greindi mbl.is frá í frétt 4. janúar á þessu ári:

Í sátt rík­is­ins og þre­menn­ing­anna var meðal ann­ars vísað til þess að Hæstirétt­ur hafi byggt niður­stöðu sína á end­ur­mati rétt­ar­ins á framb­urði ákærðu og vitna. Íslenska ríkið hafi viður­kennt að það end­ur­mat hafi falið í sér brot gegn mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu með því að brjóta gegn regl­unni um milliliðalausa málsmeðferð.

Í niður­stöðu end­urupp­töku­dóms seg­ir meðal ann­ars að í sátt­inni hafi fal­ist sömu sjón­ar­mið og lágu fyr­ir í niður­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu í máli Styrmis Þórs Braga­son­ar sem fór með sam­bæri­legt mál fyr­ir dóm­stól­inn. Í því fel­ist meðal ann­ars að óum­deilt sé að Hæstirétt­ur hafi lagt nýtt og víðtæk­ara mat á staðreynd­ir máls­ins á grund­velli end­ur­rita og munn­legra skýrslna sem gefn­ar voru fyr­ir héraðsdómi. Því hafi verið „veru­leg­ir gall­ar“ á meðferð máls­ins fyr­ir Hæsta­rétti sem hafi haft áhrif á niður­stöðu þess. Er því fall­ist á beiðnirn­ar um end­urupp­töku máls­ins.

Verður í ljósi málsatvika að vísa málinu frá

Í ljósi þess að auk ákærðu krafðist ákæruvaldið þess enn fremur að endurupptökumálinu yrði vísað frá féllst Hæstiréttur á það auk þess að vísa meðal annars í fyrri dóm mannréttindadómstólsins með svofelldum orðum:

„Til grundvallar endurupptöku máls þess sem síðar var leitt til lykta með dómi Hæstaréttar í máli nr. 7/2022 lá dómur Mannréttindadómstóls Evrópu 16. júlí 2019 í máli nr. 36292/14, C gegn Íslandi. Í þessu máli liggja fyrir sáttir milli ákærðu og íslenska ríkisins sem gerðar voru með vísan til fyrrgreinds dóms mannréttindadómstólsins. Að gættri kröfugerð ákæruvaldsins hér fyrir dómi verður í ljósi málsatvika og dóms Hæstaréttar í máli nr. 7/2022 að vísa málinu frá Hæstarétti.“

Í dómsorði segir enn fremur að allur sakarkostnaður málsins vegna fyrri málsmeðferðar fyrir héraðsdómi og Hæstarétti greiðist úr ríkissjóði, þar með talin málsvarnarlaun skipaðra verjenda ákærðu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert