Eldur kom upp í blaðagámi við Langholtsskóla um klukkan þrjú í nótt og var slökkviliðið kallað út.
Aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir ekki liggja fyrir hver upptök eldsins voru en bætir þó við að lítil hætta hafi stafað af honum. Var eldurinn nánast búinn að lognast út þegar að slökkvilið bar að garði.
Þá stóð gámurinn einn og sér úti á plani og því var lítil hætta á að eldurinn myndi breiða úr sér.