Einar Júlíusson látinn

Einar Júlíusson.
Einar Júlíusson.

Söngvarinn Einar Júlíusson er látinn, 78 ára að aldri. Lést hann í faðmi fjölskyldu sinnar í nótt, að því er segir í tilkynningu frá aðstandendum.

Einar var eitt helsta átrúnaðargoð unga fólksins á 7. áratugnum og var kosinn vinsælasti dægurlagasöngvari þjóðarinnar 1965. Hann var fyrsti söngvari Hljóma, söng lengi með hljómsveitinni Pónik auk þess sem hann söng inn á hljómplötur og kom fram í útvarps- og sjónvarpsþáttum og á hljómleikum.

Einar fæddist í Keflavík 20. ágúst 1944, en hann bjó þar og starfaði alla tíð. 

Hóf hann á barnsaldri að syngja, en hann var einn af stofnendum Hljóma og var fyrsti söngvari þeirra frægu hljómsveitar eins og áður sagði.  Hann átti síðan farsælan 23 ára ferill með hljómsveitinni „Pónik og Einar“.

Á síðari árum lagði hann áherslu á einsöng, þar sem hann söng við ýmsar athafnir. Einar söng á hljómplötu með Ellý Vilhjálmsdóttur og varð sú plata mjög vinsæl. Á meðal laga sem fræg urðu í flutningi Einars voru til dæmis lögin „Brúnaljósin brúnu“, „Léttur í lundu“ og „Viltu dansa“.

Einar rifjaði upp ferilinn í samtali við Morgunblaðið árið 2001.

Einnig ræddi Morgunblaðið stuttlega við Einar árið 2009, í tilefni af 65 ára afmæli söngvarans.

Þá var upphaf Hljóma rifjað upp árið 2003.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert