Réðst á barnsmóður sína með exi við skóla

Atvikið átti sér stað síðdegis í lok nóvember fyrir framan …
Atvikið átti sér stað síðdegis í lok nóvember fyrir framan Dalskóla í Úlfarsárdal. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Rúmlega fimmtugur karlmaður hefur verið ákærður af embætti héraðssaksóknara fyrir tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sambandi með því að hafa ítrekað ráðist að fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður með exi við Dalskóla í Úlfarsárdal í lok nóvember.

Þá skemmdi hann einnig bifreið konunnar með öxinni.

Samkvæmt ákæru er maðurinn sagður hafa slegið konuna með öxi sem var með 12 cm blaði í höfuðið og hent henni í jörðina og í framhaldinu átt í átökum við hana uns konan náði að koma sér í burtu og leita skjóls í skólanum.

Eftir að árásin átti sér stað kom fram að konan hefði verið að sækja börn sín í skólann, en foreldrar, börn og starfsfólk varð vitni að árásinni. Sendi skólastjóri Dalskóla foreldrum barna við skólann bréf í kjölfarið þar sem tekið var fram að það snerti tvö börn við skólann.

Eyðilagði bifreiðina

Er maðurinn sagður hafa ógnað lífi konunnar, heilsu og velferð með athæfi sínu, en konan hlaut opið sár á höfði, brot á höfuðkúpu og andlitsbeinum og sár og mar víða á handleggjum, fótleggjum, öxl og andliti.

Maðurinn er í öðrum lið ákærunnar ákærður fyrir að hafa beitt öxinni á bifreið konunnar og valdið skemmdum þannig að bifreiðin eyðilagðist.

Maðurinn hefur dvalið á réttar- og öryggisgeðdeild eftir að árásin átti sér stað.

Auk þess sem saksóknari fer fram á að manninum verði gerð refsing, þá fer konan fram á 4,5 milljónir í miska- og skaðabætur vegna árásarinnar og 2 milljónir vegna munatjóns.

Lögregla sagði við mbl.is í byrjun desember að konan væri á batavegi eftir árásina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert