Frost á bilinu 6 til 22 stig

Kaldast verður inn til landsins norðaustanlands.
Kaldast verður inn til landsins norðaustanlands. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Enn þá liggur kalt loft yfir landinu og verður frost á bilinu 6 til 22 stig í dag. Kaldast verður inn til landsins norðaustanlands.

Þetta kem­ur fram í hug­leiðing­um veður­fræðings á Veður­stofu Íslands. 

Kemur fram að í dag verði áframhaldandi norðlæg átt á landinu, víða 5-13 m/s en að 15 m/s suðaustantil. Éljagangur verður á Norður- og Austurlandi, en annars yfirleitt léttskýjað. 

Veður­vef­ur mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert