Vilja ekki sjá pósthúsinu í Mjódd lokað

Tilkynnt hefur verið um áform Póstsins að loka pósthúsinu í …
Tilkynnt hefur verið um áform Póstsins að loka pósthúsinu í Mjódd. Ljósmynd/Pósturinn

Á fundi borgarstjórnar á morgun munu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja fram tillögu um að borgarstjórn skori á Íslandspóst að halda áfram rekstri póstafgreiðslu í Mjóddinni í Breiðholti.

Kjartan Magnússon borgarfulltrúi greinir frá á Facebook-síðu íbúasamtakanna Betra Breiðholts.

Þjónar fjölmennasta hverfi borgarinnar

Í greinargerð með tillögunni segir að fjölsótt póstafgreiðsla hafi verið starfrækt í Mjóddinni í um þrjá áratugi og að hún þjóni Breiðholti, sem er fjölmennasta hverfi Reykjavíkur og landsins alls, með um 23 þúsund íbúa.

Tilkynnt hefur verið um þau áform Póstsins að pósthúsinu í Mjódd verði lokað en viðskiptavinum þess í stað vísað á pósthús við Dalveg í Kópavogi, samkvæmt greinargerð með tillögunni.

Leggjast ekki gegn hagræðingu

Þá segir að staðsetning póstafgreiðslunnar í Mjódd sé auk þess hentug fyrir marga aðra en íbúa Breiðholts, þar sem hún er mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu og rekin í tengslum við vinsæla verslunarmiðstöð og að hún liggi afar vel við almenningssamgöngum þar sem hún er starfrækt í stærstu skiptistöð Strætó bs.

Samkvæmt greinargerðinni leggst Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík ekki gegn því að Íslandspóstur hagræði í rekstri sínum en bendir þó á að þrátt fyrir fyrirhugaðar breytingar sé ljóst að rekstur pósthúsa verði áfram veigamikill hluti af starfsemi fyrirtækisins.

Áform um lokun orka tvímælis

„Áform um lokun fjölsóttrar póstafgreiðslu í fjölmennasta hverfi landsins orkar þó tvímælis á sama tíma og Pósturinn hyggst áfram reka margar póstafgreiðslur í fámennum byggðarlögum víðs vegar um land,“ eins og segir í greinargerðinni.

„Sjö strætisvagnaleiðir fara nú um Mjódd eða hafa þar endastöð, þar af þrjár stofnleiðir. Mjóddin hefur þannig góðar tengingar við öll hverfi höfuðborgarsvæðisins. Auk þess er Mjódd miðstöð fólksflutninga út á land þar sem allar helstu leiðir landsbyggðarstrætós hafa upphafs- og endastöð þar,“ segir ennfremur í greinargerð með tillögunni.

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks.
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Greiðari aðgangur að Mjóddinni 

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks telja ljóst að pósthúsið við Dalveg henti gangandi vegfarendum og strætófarþegum mun síður en núverandi póstafgreiðsla í Mjóddinni en tvær strætisvagnaleiðir (24, 28) liggja nú um Dalveg. Þeir segja hvoruga þeirra stofnleið og aðra þeirra innanbæjarleið í Kópavogi án tengingar við Mjódd eða önnur sveitarfélög.

Þeir segja þrjár strætisvagnaleiðir, þar af eina stofnleið (4, 21 og 24), tengja Mjóddina hins vegar við hverfi Kópavogs.

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks telja þannig fyrirhugaðar breytingar slæmar fyrir flesta þá sem eiga erindi í póstafgreiðslu og hyggjast nota almenningssamgöngur til þess.

„Þrátt fyrir ýmsar nýjungar í póstþjónustu er gert ráð fyrir að margir muni áfram nýta sér þjónustu pósthúsa. Á það ekki síst við um eldra fólk sem og ýmsa sem hafa ekki bíl til umráða. Fyrir slíka hópa er mun greiðari aðgangur að Mjóddinni vegna öflugra almenningssamgangna en að Dalvegi,“ segir í greinargerð með tillögunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert