Hrina smáskjálfta í Mýrdalsjökli

Horft til vesturs yfir Mýrdalsjökul og Kötlu.
Horft til vesturs yfir Mýrdalsjökul og Kötlu. mbl.is/RAX

Hrina smáskjálfta hefur mælst í vestanverðum Mýrdalsjökli í dag.

Salóme Jórunn Bernharðsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir í samtali við mbl.is að hrinur sem þessar sjáist ekki á hverjum degi.

„En þetta er svo sem ekki óvenjulegt, þannig séð,“ bætir hún við.

Skjálftarnir hafa orðið í vestanverðum jöklinum eins og sjá má …
Skjálftarnir hafa orðið í vestanverðum jöklinum eins og sjá má á kortinu. Kort/Veðurstofa Íslands

Stærri skjálftar fyrr í mánuðinum

Tekur hún fram að frekar hefðbundið sé að skjálftar mælist í Mýrdalsjökli.

Til marks um það riðu nokkrir skjálftar af stærð 3 og yfir við eldstöðina fyrr í þessum mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert