Karl Gauti verður aftur lögreglustjóri

Karl Gauti Hjaltason tekur við sem lögreglustjóri í Vestmannaeyjum um …
Karl Gauti Hjaltason tekur við sem lögreglustjóri í Vestmannaeyjum um mánaðarmótin.

Karl Gauti Hjaltason, fyrrverandi sýslumaður og lögreglustjóri í Vestmannaeyjum og alþingismaður fyrir Flokk fólksins og Miðflokkinn, hefur verið skipaður lögreglustjóri í Vestmannaeyjum á ný. Þetta kemur fram í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu, en Karl Gauti er skipaður frá og með 1. apríl.

Karl Gauti lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1989 og hlaut réttindi héraðsdómslögmanns árið 1996. Hann starfaði sem dómarafulltrúi hjá bæjarfógetum á árunum 1989 til 1992 og var fulltrúi og síðar staðgengill hjá embætti sýslumannsins á Selfossi frá 1992 til 1998. Hann var sýslumaður og lögreglustjóri í Vestmannaeyjum frá 1998 til 2014 og skólastjóri Lögregluskóla ríkisins frá 2014 til 2016.

Karl Gauti hefur átt sæti í almannavarnanefnd Vestmannaeyja og stjórn fræðslu- og starfsmenntunarsjóðs lögreglu. Þá var Karl Gauti settur sýslumaður á Hólmavík hluta úr sumri árið 1996 og settur lögreglustjóri í Reykjavík, rannsóknarlögreglustjóri og sýslumaður í Vestmannaeyjum til að rannsaka einstök sakamál. Auk þess hefur Karl Gauti setið í tveimur starfshópum á vegum innanríkisráðuneytisins í málefnum sem tengjast lögreglu.

Karl Gauti var kjörinn á þing árið 2017 fyrir Flokk fólksins og sat sem þingmaður til ársins 2021. Í millitíðinni gekk hann til liðs við Miðflokkinn, en honum og Ólafi Ísleifssyni hafði verið vikið úr Flokki fólksins í kjölfar Klausturmálsins svokallaða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert