Vantraustið tekið fyrir á Alþingi um miðjan morgun

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra verst vantrausti í dag.
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra verst vantrausti í dag. mbl.is/Hákon Pálsson

Umræða um vantrauststillögu fjögurra flokka stjórnarandstöðu gegn Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra hefst á Alþingis kl. 10.30 í dag. Umsamið er að umræða um tillöguna standi í rúma tvo tíma en þá fer fram einföld atkvæðagreiðsla um hana.

Viðbúið er að auk eiginlegra umræðna verði mikið um ræður „um atkvæðagreiðslu“ og skýringar á atkvæði þingmanna í nafnakalli, svo teygst getur úr dagskrárliðnum og dagskráin riðlast af þeim sökum.

Greinir á um upplýsingagjöf

Þingflokksformenn Flokks fólksins, Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar lögðu í gær fram vantrauststillögu á hendur dómsmálaráðherra. Telja þingflokkarnir að ráðherra hafi brotið lög þegar hann breytti afgreiðslu umsókna um ríkisborgararétt hjá Útlendingastofnun og hvenær og hversu ítarlegar upplýsingar berast þinginu vegna sérstakra umsókna um ríkisborgararétt, sem það fjallar um.

Að mati stjórnarandstöðunnar var þar gengið á svig við þingsköp og stjórnarskrá og mikilvægt að þingið spyrni fótunum.

Segist engin lög hafa brotið

Jón Gunnarsson telur sig engin lög hafa brotið og segir alrangt að hann hafi haldið upplýsingum frá Alþingi. Bryndís Haraldsdóttir, flokkssystir hans og formaður allsherjar- og menntamálanefndar, tekur undir það og segir að Útlendingastofnun hefði aldrei neitað þinginu um gögn.

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert