Atli ráðinn samhæfingarstjóri í móttöku flóttafólks

Atli Viðar hefur verið sviðsstjóri alþjóðasviðs Rauða krossins á Íslandi …
Atli Viðar hefur verið sviðsstjóri alþjóðasviðs Rauða krossins á Íslandi frá árinu 2016. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Atli Viðar Thorstensen hefur verið ráðinn í starf samhæfingarstjóra í móttöku flóttafólks hjá forsætisráðuneytinu.

Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins kemur fram að starfið var auglýst í mars og sóttu alls 16 um stöðuna. 

Atli Viðar hefur lokið BA-námi í sagnfræði og námi í mannréttindafræðum frá Háskólanum í Essex. Hann hefur verið sviðsstjóri alþjóðasviðs Rauða krossins á Íslandi frá árinu 2016 og starfaði áður sem verkefnastjóri í flóttamannamálum hjá Rauða krossinum.

Samhæfingarstjóri mun stýra samhæfingarteymi um móttöku flóttafólks sem tók nýverið til starfa. Meginverkefni teymisins er að efla samhæfingu og yfirsýn yfir helstu verkefni sem snúa að móttöku flóttafólks, þvert á ráðuneyti, stofnanir og sveitarfélög,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert