„Með fullt og óskorað umboð“

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, og Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður …
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, og Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Samsett mynd

Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga (SNS) fer með fullt og óskorað umboð fyrir hönd stjórnar sambandsins í yfirstandandi kjaraviðræðum við BSRB.

Þetta kemur fram í tilkynningu SNS. Í gær sagði Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, að samninganefnd BSRB hefði orðið þess áskynja að nefnd sambandsins væri ekki með umboð til neinna viðræðna. Gagnrýndi hún það jafnframt að formaður SNS hefði ekki tekið þátt í kjaraviðræðunum.

Í tilkynningu SNS kemur fram að sveitarfélögin hafi uppfyllt og efnt samninga sína að fullu gagnvart BSRB og að sambandið hafni alfarið fullyrðingum BSRB um að sveitarfélögin séu að brjóta jafnréttislög. „Ef BSRB telur svo vera hvetur sambandið þau til að fara með málið fyrir dómstóla þar sem það verður ekki leyst með fyrirsögnum í fjölmiðlum,” segir í tilkynningunni.

Bent er á að samninganefnd SNS hafi lagt fram kjarasamningstilboð sem tryggi félagsmönnum BSRB hærri hlutfallshækkanir launa en forysta BSRB hafi þegar samið um við aðra opinbera vinnuveitendur.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Tilhæfulaus krafa

„Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga fjallaði um kröfu BSRB á fundi sínum 28. apríl sl. þar sem kröfum BSRB var alfarið hafnað enda um tilhæfulausa kröfu að ræða vegna samnings sem er liðinn.

BSRB bauðst sami samningur og SGS undirritaði 2020 en hafnaði honum afdráttarlaust þrátt fyrir ítrekuð tilmæli SNS til BSRB um að samþykkja slíkan samning enda myndu félagsmenn þeirra að öðrum kosti verða af launahækkunum í ársbyrjun 2023. SNS hefur undir höndum skrifleg samskipti við forystu BSRB um þetta mál og þykir miður að öðru sé haldið fram í fjölmiðlum,” segir einnig í tilkynningunni.

Fram kemur að viðræðurnar séu á viðkvæmu stigi og vonandi muni samningsaðilar ná saman á næstunni.

Ekki náðist í Heiðu Björg Hilmisdóttur, formann SNS, við vinnslu fréttarinnar. Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari kvaðst í samtali við blaðamann ekki vilja tjá sig um kjaraviðræðurnar, sem væru á viðkvæmu stigi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert