Óskar eftir frekari skýringum um hæfi Bjarna

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir frekari skýringum á afstöðu Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, til hæfis hans vegna sölu á 22,5% hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. í mars í fyrra. 

Í tilkynningu kemur fram að umboðsmaður fer einnig fram á að afhent verði öll þau gögn sem fyrir liggja um samskipti Bjarna og ráðuneytisins við Bankasýslu ríkisins frá því að söluferlið hófst þar til úthlutun hlutabréfa lauk, m.a. tölvupóstsamskipti, minnisblöð og símtöl.

Í mars óskaði umboðsmaður eftir til­tekn­um skýr­ing­um og upp­lýs­ing­um frá ráðherra, meðal annars hvort hæfi Bjarna hafi verið full­nægt að því snert­ir söl­una á hlut­um rík­is­ins í bank­an­um til Hafsilf­urs ehf., sem er fé­lag í eigu Bene­dikts Sveins­son­ar, föður Bjarna. 

Svar frá ráðherra barst 24. mars en nú er óskað eftir nánari og ítarlegum skýringum á afstöðu ráðherra, m.a. hvort hann telji það hafa verið forsendu hugsanlegs vanhæfis síns í málinu að hann hefði vitneskju um að einkahlutafélagið væri meðal bjóðenda. 

Ekki ljóst hvort fyrirkomulagið gætti hæfisreglna

Umboðsmaður telur en enn ekki fyllilega ljóst hvort ráðherra telji það fyrirkomulag sem viðhaft var við söluna hafi í reynd tryggt að gætt yrði hæfisreglna en í því tilliti er m.a. spurt um hvort raunhæft hefði verið að kanna hvort fyrirhugaðir kaupendur hefðu þau tengsl við ráðherra að slík álitamál vöknuðu.

Í ljósi þess að í svari ráðherra kemur fram að engin athugun á slíkum tengslum fór fram innan ráðuneytisins óskar umboðsmaður einnig eftir upplýsingum um hvort það hafi litið svo á að Bankasýslunni bæri að kanna slík atriði. Spyr hann í því sambandi hvort stofnuninni hafi verið ljóst að einkahlutafélag í eigu föður ráðherra væri á meðal bjóðenda og þá hvers vegna athygli ráðuneytisins hafi ekki verið vakin á því,“ segir í tilkynningunni. 

Svör skuli hafa borist umboðsmanni eigi síður en 9. júní. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert