Óskar svara um hæfi fjármálaráðherra

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd …
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í nóvember. mbl.is/Kristinn Magnússon

Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir tilteknum skýringum og upplýsingum frá Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, um söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka.

Meðal annars er spurt um hvort hæfi Bjarna hafi verið fullnægt að því snertir söluna á hlutum ríkisins í bankanum til Hafsilfurs ehf., sem er félag í eigu Benedikts Sveinssonar, föður Bjarna. 

Á vef Umboðsmanns Alþingis segir að almennt fjalli umboðsmaður ekki um mál samtímis því sem þau eru til meðferðar hjá Alþingi á grundvelli eftirlitshlutverks embættisins. 

Í bréfi sem umboðsmaður sendi Bjarna í gær kemur fram „að ekki verði ráðið að í skýrslu Ríkisendurskoðunar hafi verið fjallað sérstaklega um sölu á hlutum í Íslandsbanka til Hafsilfurs ehf., félags í eigu föður ráðherra, eða álitamál um hæfi hans í því sambandi. Þá verði ekki heldur séð að með umfjöllun sinni um skýrsluna hafi stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis tekið rökstudda afstöðu til slíkra atriða“. 

Þá er bent á í bréfinu að á að hinum sérstöku hæfisreglum stjórnsýslulaga sé ekki aðeins ætlað að koma í veg fyrir að ómálefnaleg sjónarmið hafi áhrif á efni stjórnvaldsákvarðana heldur sé þeim einnig ætlað að stuðla að því að almenningur og hlutaðeigandi geti treyst því að stjórnvöld leysi úr málum á hlutlægan hátt.

Söluferlið í samræmi við lög

Óskar umboðsmaður því eftir að ráðherra upplýsi og skýri hvort og með hvaða hætti sérstöku hæfi hans hafi verið fullnægt að því snertir sölu á hlut bankans til Hafsilfurs ehf.

Einnig er spurt hvort og þá hvernig undirbúningi sölumeðferðarinnar hafi verið hagað þannig að tryggt væri að gætt yrði reglna stjórnsýslulaga um sérstakt hæfi þegar kæmi að ákvörðunum ráðherra um hvort tilboð skyldu samþykkt eða þeim hafnað.

Og að lokum er óskað rökstuddrar afstöðu ráðherra til þess hvort og þá að hvaða marki hann hafi sem ráðherra borið lagalega og stjórnskipulega ábyrgð á því að söluferlið færi fram í samræmi við lög.

Svör ráðherra eiga að berast umboðsmanni fyrir 25. mars. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert