Gervitunglamyndir sýna mökkinn frá gosinu

Rannsóknarstofa í eldfjallafræði og náttúruvá, Háskóla Íslands birti gervitunglamyndir þar …
Rannsóknarstofa í eldfjallafræði og náttúruvá, Háskóla Íslands birti gervitunglamyndir þar sem reykmökkurinn frá gosinu sést einstaklega vel. Samsett mynd

„Það bar vel í veiði hvað gervitunglamyndir varðar í dag,“ segir í tilkynningu frá Rannsóknarstofu í eldfjallafræði og náttúruvá, við Háskóla Íslands. Sjá má MODIS mynd frá NASA sem spannar hluta af Austur-Grænlandi, hafísinn á Grænlandi og vesturhluta landsins. Syðst á myndinni sést mökkurinn frá gosinu við Litla-Hrút taka smá snúning til suðvesturs. Segir í tilkynningunni að um einstaklega fallegan sumardag hafi verið að ræða.  

„Ef vel er gáð sést einnig borgarísjaki út fyrir Ströndum, …
„Ef vel er gáð sést einnig borgarísjaki út fyrir Ströndum, hvítur depill,“ greinir rannsóknarstofan frá. Ljósmynd/Rannsóknarstofa í eldfjallafræði og náttúruvá, Háskóli Íslands

Þar að auki var birt SENTINEL mynd frá Copernicus EU, en í tilkynningunni kemur fram að hún sé í hærri upplausn og sýni því nýju gosstöðvarnar við Litla-Hrút þar sem gossmökkurinn er blandaður reyk vegna sinubruna, og hraunsins úr gosunum í Meradölum árið 2021 og Geldingadal árið 2022.

Var myndin tekin klukkan 13.13 í dag.
Var myndin tekin klukkan 13.13 í dag. Ljósmynd/Rannsóknarstofa í eldfjallafræði og náttúruvá, Háskóli Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert