Rennsli í Skaftá við Sveinstind fór að aukast í gærkvöldi og þá mældist einnig aukin rafleiðni í ánni. Þá hefur Veðurstofunni borist tilkynningar um brennisteinslykt frá landvörðum í Hólaskjóli.
Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi, hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna hlaupsins en síðast kom hlaup í Skaftá í september árið 2021.
Í tilkynningu á vef Veðurstofunnar kemur fram að Skaftárkatlarnir sem hlaupin koma úr eru tveir, eystri og vestari, og eru í vestanverðum Vatnajökli. Hlaup úr Eystri-Skaftárkatli eru að jafnaði stærri en hlaupin úr vestari katlinum.
Nú er verið að rýna í gervitunglamyndir til að kanna úr hvorum katlinum hlaupið kemur eða hvort hlaup komi úr þeim báðum, líkt og gerðist árið 2021.
Skaftárhlaup eins og þau koma fram í dag hófust árið 1955 en síðan þá er vitað um 59 jökulhlaup í Skaftá. Að jafnaði hleypur úr hvorum katli fyrir sig á tveggja ára fresti.
Rennsli við Sveinstind var um 600 m3/s kl 9 í morgun og fór þá vaxandi. Búist er við að hámarksrennsli við þjóðveg 1 verði náð um tíu klukkustundum síðar en við Sveinstind.
Þá segir að stærð hlaupsins ráðist af því úr hvorum katlinum hlaupið kemur.
Mikilvægi þess að íbúar og allir þeir sem eiga leið um flóðasvæðið séu meðvitaðir um hættur sem geta skapast eru ítrekaðar.