Niður um almannavarnastig vegna eldgossins

Eldgosið á milli Hagafells og Stóra Skógfells hefur verið í …
Eldgosið á milli Hagafells og Stóra Skógfells hefur verið í gangi frá 16. mars. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ríkislögreglustjóri, í samráði við Lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að fara af neyðarstigi niður á hættustig Almannavarna vegna eldgossins milli Hagafells og Stóra Skógfells.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum en þar segir ennfremur:

„Farið var á neyðarstig þegar eldgosið hófst þann 16. mars sl.  Þrátt fyrir að eldgosið haldi áfram þá hefur staðan nú haldist óbreytt um nokkurt skeið. Ekki hefur mælst landris á svæðinu síðustu daga.  

Ýmsar áskoranir eins og gróðureldar í kringum hraunbreiðuna, gasmengun hafa verið viðvarandi síðustu daga en mengunin hefur borist í byggð á Suðurnesjum. Áfram verður fylgst með gróðureldum við eldgosið og brugðist við þegar þarf, einnig hefur verið farið í fyrirbyggjandi aðgerðir.   Almenningur getur bæði fylgst með gasmengunarspá á vef Veðurstofunnar og loftgæðum á vefnum loftgaedi.is.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert